Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Leyfisveitingar vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku verði einfaldaðar

Ferli leyfisveitinga vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku verður einfaldað og gert skilvirkara samkvæmt tillögum átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem kynntar voru í morgun. Hópurinn var skipaður í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið í desember síðastliðnum.

Dæmi eru um að stjórnsýslumeðferð þjóðhagslega mikilvægra framkvæmda í flutningskerfinu hafi tekið meira en 10 ár.

Átakshópurinn skipaði sérstakan undirhóp til að gera tillögur um hvernig gera mætti leyfisveitingaferlið skilvirkara án þess að gefa afslátt af kröfum um vandaðan undirbúning og samráð.

Helstu tillögur hópsins eru:

  • Bættur verði málsmeðferðarhraði hjá lykilstofnunum og mál sett í forgang er varða stjórnsýslu framkvæmda við flutningskerfi raforku
  • Heimilt verði að taka eina sameiginlega aðalskipulagsákvörðun um línulagnir þvert á sveitarfélagamörk
  • Heimilt verði að skipa sérstaka sjálfstæða stjórnsýslunefnd vegna framkvæmda við flutningskerfi raforku til að undirbúa og samþykkja skipulagsákvörðun, gefa út framkvæmdaleyfi og hafa eftirlit með framkvæmdinni
  • Vinna við mat á umhverfisáhrifum annars vegar og skipulagsákvörðun hins vegar verði keyrð samhliða

„Ég fagna því að hér höfum við vandaða greiningu á því hvaða þættir hafa verið að valda mestum töfum og raunhæfar tillögur til úrbóta,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra orkumála. „Þetta snýst ekki um að draga úr kröfum eða samráði, þetta snýst um að auka skilvirkni. Þetta eru góðar tillögur sem ég tel að við eigum að ganga hratt í að útfæra og innleiða.“

Átakshópurinn gerir fjölmargar fleiri tillögur í orkumálum. Þær helstu eru flýting jarðstrengjavæðingar dreifikerfis raforku, efling varaafls, flýting framkvæmda til styrkingar á svæðisflutningskerfi raforku og aukið öryggi í framboði varma til húshitunar á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

Tillögurnar og viðbótarupplýsingar má nálgast á vefnum innvidir2020.is. Tillögurnar verða til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda til loka mars.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
17. Samvinna um markmiðin
7. Sjálfbær orka
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum